Skip to content

Cart

Your cart is empty

Terms of service

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Netverslunin hlinreykdal.com er rekin af:

Stúdíó H slf.
Vörumerki: Hlín Reykdal
Kennitala: 560713-0610
VSK-númer: 114407
Skráð í Fyrirtækjaskrá Skattsins

Starfs- og póstfang: Klapparstígur 25–27
101 Reykjavík
Ísland

Netfang: hlin@hlinreykdal.com
Sími: +354 616 2316

VERÐ, GREIÐSLUR OG PANTANIR

Öll verð í netversluninni eru gefin upp í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt.

Greiðsla fer fram með þeim greiðslumátum sem eru í boði í greiðsluferli netverslunarinnar hverju sinni. Pöntun telst móttekin þegar viðskiptavinur fær pöntunarstaðfestingu á uppgefið netfang.

Hlín Reykdal áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar innsláttar- og verðvillur. Ef rangt verð hefur birst eða pöntuð vara reynist ekki fáanleg verður haft samband við viðskiptavin eins fljótt og unnt er. Viðskiptavinur getur þá samþykkt breytt verð eða aðra úrlausn, eða fengið pöntunina endurgreidda.

GÖLLUÐ VARA:

Ef vara reynist gölluð gilda ákvæði laga nr. 48/2003 um neytendakaup.

Viðskiptavinur skal tilkynna Hlín Reykdal um galla án ástæðulauss dráttar eftir að hans verður vart. Frestur til að kvarta er aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að viðskiptavinur varð gallans var. Almennur kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu vörunnar.

Kvörtun skal senda á hlin@hlinreykdal.com. Gott er að láta pöntunarnúmer og lýsingu á gallanum fylgja og, ef mögulegt er, skýrar ljósmyndir sem sýna gallann.

Ef vara telst gölluð getur viðskiptavinur átt rétt á viðgerð eða nýrri afhendingu án kostnaðar. Úrbætur skulu fara fram innan hæfilegs tíma og án verulegs óhagræðis fyrir viðskiptavininn.

Ef ekki er unnt að gera við vöruna eða afhenda nýja vöru innan hæfilegs tíma getur viðskiptavinur, eftir atvikum, átt rétt á hæfilegum afslætti eða riftun kaupanna og endurgreiðslu. Ekki er hægt að krefjast riftunar ef gallinn er óverulegur.

Ef kvörtun er réttmæt ber Hlín Reykdal nauðsynlegan og eðlilegan kostnað vegna skila, viðgerðar eða nýrrar afhendingar.

Réttur vegna galla nær ekki til skemmda sem rekja má til rangrar notkunar, óhapps, óeðlilegrar meðferðar eða eðlilegs slits.

Kvörtunarfrestur vegna galla er almennt tvö ár frá afhendingu vörunnar. Um lengri kvörtunarfrest fer aðeins samkvæmt ófrávíkjanlegum ákvæðum laga nr. 48/2003 um neytendakaup, þegar þau eiga við.

KÆRULEIÐIR NEYTENDA

Komi upp ágreiningur milli Hlínar Reykdal og neytanda verður leitast við að leysa málið með beinum samskiptum. Hægt er að senda kvörtun á hlin@hlinreykdal.com.

Takist ekki að leysa ágreininginn getur neytandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa:

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Borgartún 29
105 Reykjavík
Netfang: kvth@kvth.is
Sími: 510 1125
Vefsíða: https://kvth.is