Shipping policy
AFGREIÐSLA OG AFHENDING
Pantanir eru að jafnaði afgreiddar innan 1–3 virkra daga frá því að greiðsla og pöntunarstaðfesting liggja fyrir.
Á stórum tilboðs- og álagstímum, svo sem í kringum jólin, getur afgreiðsla tekið lengri tíma. Upplýsingar um fyrirsjáanlegar tafir verða birtar í netversluninni þegar við á.
Í boði eru þeir afhendingarmátar sem birtast í greiðsluferlinu hverju sinni. Sendingarkostnaður kemur skýrt fram áður en gengið er frá greiðslu. Frí sending innanlands er í boði þegar verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira, samkvæmt þeim skilyrðum sem birtast í greiðsluferlinu.
Þegar pöntun hefur verið afhent flutningsaðila tekur við áætlaður flutningstími viðkomandi afhendingaraðila. Komi upp óvenjulegar tafir verður viðskiptavinur upplýstur eins fljótt og unnt er.
SÆKJA PÖNTUN
Hægt er að velja að sækja pöntun í Kiosk, Grandagarði 35, 101 Reykjavík. Viðskiptavinur fær tilkynningu þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar. Ekki skal mæta til að sækja pöntun fyrr en slík tilkynning hefur borist.