Refund policy
SKIL, VÖRUSKIPTI OG RÉTTUR TIL AÐ FALLA FRÁ NETKAUPUM
Réttur til að falla frá netkaupum
Neytandi hefur rétt til að falla frá kaupum í netverslun innan 14 daga án þess að tilgreina ástæðu. Fresturinn hefst þegar neytandi, eða aðili sem hann tilnefnir, tekur við vörunni.
Til að nýta réttinn þarf að senda skýra tilkynningu innan frestsins á hlin@hlinreykdal.com. Neytandi getur einnig notað staðlað eyðublað um rétt til að falla frá samningi sem birt er með skilmálunum.
Endursending vöru
Vöru skal skila eða senda til baka án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning um að fallið sé frá kaupunum var send.
Skilavörur skal senda til:
Hlín Reykdal
Klapparstígur 25–27
101 Reykjavík
Ísland
Viðskiptavinur greiðir sjálfur beinan kostnað við að skila eða endursenda vöru. Varan þarf að vera tryggilega pökkuð. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af annarri meðferð en nauðsynleg er til að kanna eiginleika, einkenni og virkni hennar.
Endurgreiðsla
Ef allri pöntuninni er skilað innan lögbundins 14 daga frests er kaupverð vörunnar endurgreitt ásamt kostnaði við ódýrasta almenna afhendingarmátann sem var í boði þegar kaupin voru gerð.
Ef viðskiptavinur valdi dýrari afhendingarmáta er mismunurinn ekki endurgreiddur. Ef aðeins hluta pöntunar er skilað er upphaflegi sendingarkostnaðurinn ekki endurgreiddur, enda hefði sendingarkostnaðurinn verið sá sami vegna þeirra vara sem viðskiptavinurinn heldur eftir.
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumiðli og notaður var við kaupin, nema sérstaklega sé samið um annað. Heimilt er að halda endurgreiðslu eftir þar til varan hefur borist til Hlínar Reykdal eða viðskiptavinur hefur lagt fram staðfestingu á að hún hafi verið send til baka, hvort sem gerist fyrr.
Vöruskipti
Óski viðskiptavinur eftir að skipta vöru getur hann haft samband við Hlín Reykdal á hlin@hlinreykdal.com og valið aðra vöru úr netversluninni. Verðmunur og afhending nýrrar vöru er þá afgreidd í samráði við viðskiptavininn.
Einnig má fara með vöruna í Kiosk, Grandagarð 35, 101 Reykjavík, og skipta henni í aðra vöru frá Hlín Reykdal sem er fáanleg þar.
Ef nýja varan í Kiosk er dýrari greiðir viðskiptavinurinn mismuninn. Kiosk getur hvorki endurgreitt mismun né gefið út inneign ef valin er ódýrari vara.
Kiosk annast ekki endurgreiðslur vegna netkaupa. Óski viðskiptavinur eftir endurgreiðslu þarf að hafa samband við Hlín Reykdal og fylgja skilmálum um rétt til að falla frá netkaupum.
Óski viðskiptavinur eftir endurgreiðslu eða inneign þarf að hafa samband við Hlín Reykdal á hlin@hlinreykdal.com og senda vöruna til Hlínar Reykdal, Klapparstígs 25–27, 101 Reykjavík, samkvæmt skilmálunum hér að framan.
STAÐLAÐ EYÐUBLAÐ UM AÐ FALLA FRÁ SAMNINGI
Þetta eyðublað skal aðeins fyllt út og sent ef neytandi vill falla frá samningi.
Til:
Stúdíó H slf. / Hlín Reykdal
Bergþórugata 6
101 Reykjavík
Netfang: hlin@hlinreykdal.com
Ég/við tilkynni hér með að ég/við viljum falla frá samningi um kaup á eftirfarandi vöru eða vörum:
Pöntunarnúmer:
Pantað þann:
Varan móttekin þann:
Nafn neytanda:
Heimilisfang neytanda:
Undirskrift neytanda, aðeins ef eyðublaðið er sent á pappír:
Dagsetning: